08desember
Sidasta bloggid
Það var einn sólríkan dag, sem að Ásdís hélt af stað burt frá Diani Beach í Kenya (Dramatísk tónlist spilar undir) hún vissi að hún mundi kanski aldrei snúa aftur en ákvað samt að setja sér það að markmiði að koma einn daginn, jafnvel eftir mörg ár, þó ekki væri nema í tvær vikur til þess að heilsa upp á þessa elskulega strönd. Hún ákvað að líta ekki við og horfa aðeins framm á við, þar sem að lífið blast við henni!! HVAR ER DRAUMURINN! TRALLALALA! Jæja já nú er ég víst að pakka og fara að koma mér af stað í löngu ferðina heim til klakans í norðri. Tilfiningarnar eru blendnar og mér tókst með erfiðleikum að kveðja þessa góðu vini sem að ég hef eignast hér. Ég kíkti á djammið á föstudagskveldinu var með fullt af skríl og svo er maður búin að vera að fara í heimsóknir hingað og þangað og kíkja reglulega á strandbarinn til þess að sjá sem flesta. Prófin eru í fullum gangi og ég held að mér gangi bara vel :D Að sjálfsögðu hlakka ég mikið til að koma til Frónsins góða og verð að viðurkenna að í hvert sinn sem ég skoða bloggsíður vinkvenna minna enda ég oftar en ekki með tárin í augunum og hugsa hvað væri gaman að vera memm. En jæja, ég er búin að lyggja á ströndinni og reyna að ná smá loka tani, skrifaði nokkra geisladiska fyrir ferðalagið en við erum að fara í 10daga safarí sem við endum svo í Nairobi og fljúgum heim. Ég kíkti á bíó um daginn á bíómynd sem að við Kristín erum búnar að bíða spenntar eftir að komi og heitir DOOMH 2 !! daddara! Við erum neblega alveg dottnar inn í Bollywood bíómyndirnar á indverskunni með dösnum og söngvum (ég luuuva þessar myndir einum of mikið!!) en já sko doomið var með svo heitum gaurum... og gellum að við bara þurftum að sjá hana (já þessir heitu gaurar voru indverskir! Pælið í því!!) Allavega verður þetta blogg ekki í lengri kantinum þar sem að ég þarf að fara að læra eithvað í minn haus, en ég vil minna alla sem hafa tök á að 16.des ætla ég að skella mér út á lífið í sollinum í hinni alræmdu Reykjavík og allir eru velkomnir með!! Veit allavega að Gríma og Halla eru búnar að bjóða sig framm og ég vona að sjálfboðaliðum fjölgi! Fullt af luv og hlakka til að sjá ykkur öll hress og kát eftir 10 daga!!!! Vííí! Kossar! Over and out!
Ásdísin og systirin að fara frá Diani...... (búhú smá inst inni)